Folaldasýning Sörla
Opna folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardaginn 8. mars kl. 14:00.
Keppt verður í flokki mer- og hestfolalda.Tvö folöld verða sýnd í hverju holli. Kristinn Guðnason og Guðmundur Viðarsson dæma.
Ókeypis aðgangur fyrir áhorfendur
Verðlaun verða veitt fyrir folald sýningar að mati dómara, folald sýningar að mati áhorfenda og þrjú efstu folöld í hvorum flokki.
Uppboð á folatollum verður í hléi undir topp stóðhesta. Verðlaun og uppboð á folatollum undir 1. verðlauna stóðhesta.
Skráningargjald er 2.000 kr fyrir hvert folald.
Boðnir verða upp tollar undir eftirfarandi stóðhesta:
- Arion frá Eystra-Fróðholti
- Loki frá Selfossi
- Stormur frá Herríðarhóli
- Þytur frá Neðra-Seli
- Lukku Láki frá Stóra Vatnsskarði
- Haukur frá Ragnheiðarstöðum
Styttu haustið með EiðfaxaTV