Hnokki fer á HM þrátt fyrir eignarhaldsbreytingar
Þrátt fyrir breytingar á eignarhaldi Hnokka frá Fellskoti mun Jóhann Skúlason enn fara með gæðinginn á Heimsmeistaramót.
Í ljósi gjaldþrots eigenda Skovbogaard sutteri, sem áttu meðal annars Hnokka og annan heimsmeistarafara, Örn frá Efri-Gegnishólum, eru hestarnir falir. Má meðal annars sjá þá til sölu á hestaleit.is ásamt öðrum gæðingum sem voru í eigu Skovbogaard.
Í samtali við Eiðfaxa sagði Jóhann Skúlason að það breytti þó engu um þátttöku hans og Hnokka á Heimsmeistaramóti. Samkvæmt samningum hefur hann og Julie Christiansen, knapi Arnar frá Efri-Gegnishólum, hestanna í umsjá og þjálfun fram yfir Heimsmeistaramót.
Hægt er að gera boð í gæðinganna til 22. júlí nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH