Hrauna frá Húsavík með fyli

  • 12. ágúst 2012
  • Fréttir
Hrauna frá Húsavík er fengin við Svaka frá Miðsitju. Hún hefur átt í erfiðleikum með að festa fang. Fylið er meira en þrjátíu daga og allt virðist eðlilegt.

Hrauna frá Húsavík er ein frægasta hryssa landsins, þrátt fyrir að hafa aldrei verið sýnd á stórmóti. Hún var sýnd á síðsumarssýningu á Hellu 2002, þá fimm vetra. Hún hlaut 8,44 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir frampart, tölt, vilja og fegurð. Knapi Þórður Þorgeirsson. Hrauna er undan Orra frá Þúfu og Urð frá Hvassafelli.

Hrauna hefur þó ekki reynst frjósöm. Hún er nú fimmtán vetra en á ekki nema fjögur skráð afkvæmi, sem eru fædd á bilinu 2005 til 2009. Hún hefur átt í erfiðleikum með að festa fang og oftar en ekki staðið geld. Þrjú hross á tamningaraldri eru til undan henni, tvær hryssur, sem báðar eru ósýndar, og fjögra vetra stóðhestur, Stuðlar frá Húsavík, sem var sýndur í vor og hlaut 7,70 í aðaleinkunn.

Í vor fór Hrauna í meðferð til Charlottu Oddsdóttur, dýralæknis, sem hefur í samstarfi við Önnu Báru Ólafsdóttur á Vindási í Mosfellsdal sett upp einskonar meðferðarheimili fyrir hryssur sem hafa átt í erfiðleikum með að festa fang. Eftir meðferð var Hrauna leidd undir Svaka frá Miðsitju, sem er í eigu Önnu Báru. Og nú er bara að sjá hvort ekki fæðist glæsilegt stóðhestsefni að ári.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link