Stóðhestakynning í tengslum við Fákar & fjör
Í tengslum við Stórsýninguna Fákar og fjör þann 17. apríl næstkomandi í Top Reiter höllinni á Akureyri verður stóðhestakynning frá kl 13.00.
Eigendum stóðhesta á svæðinu verður boðið að koma með þá til kynningar. Um er að ræða bæði ungfola ótamda sem og reiðfæra hesta.
Skráningargjald er kr 2500 á hest. Gerð verður Sýningarskrá og því þurfa allar upplýsingar um hestana að fylgja við skráningu. Skáning fer fram á vefnum [email protected] fyrir til og með 13 apríl. Skráningargjald greiðist við skráningu á að greiða inn á reikning 0302 – 26 -15840 kt: 430269-6749 og setja nafn hests sem skýring.
Hér er tilvalið tækifæri að koma stóðhestum á framfæri og hvetur framkvæmdanefnd Fáka og fjörs eigendur stóðhesta yngri sem eldri að nýta þetta tækifæri.
Með kveðju.
Fákar og fjör 2010.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH