Óður til íslenska hestsins
Sýningin Tölt: Óður til íslenska hestsins opnaði í Norræna húsinu um helgina og er óhætt að hvetja hestamenn til að líta við.
„Íslenski hesturinn ber á baki sér ríkulega menningararfleifð og er stór hluti þess hvernig Íslendingar skilgreina sig sem þjóð. Hesturinn er gegnheilt einkenni þjóðararfsins – hvort sem hann er í lausagöngu á hálendinu, taminn til að vinna verkin og bera okkur á bakinu eða fluttur á nýjan stað þar sem hann skeiðar í ókunnu umhverfi. Hesturinn þjónar einnig sem djúpstæð tenging við náttúru landsins og er óendanleg uppspretta andagiftar, sem brýst út í menningarsögu Íslands, skáldskap og samtímalist.
Íslenskum samtímalistamönnum og hönnuðum hefur verið gefinn laus taumur til að skapa og sýna listaverk sem innblásin eru af íslenska hestinum; fegurð hans og þokka; litum og örlögum. Listamennirnir koma skynjun sinni og sýn, innblásinni af íslenska hestinum til skila með margvíslegu móti í mismunandi efnivið.
Sýningin var fyrst sett upp í sýningarrými Norrænu sendiráðanna í Berlín, Fælleshus, sumarið 2013 á ári hestsins og að tilefni þess að heimsmeistarmót íslenska hestsins fór fram í Berlín á sama tíma.
Sýningin sló í gegn og varð sú aðsóknarmesta í sögu Fælleshus.
Á sýningunni eru verk eftir íslenska listamenn, ljósmyndara og fatahönnuði. Sýningarstjóri sýningarinnar er Ragna Fróðadóttir en sýningarumsjón er í höndum Birtu Fróðadóttir sem nýverið flutti til Íslands frá Berlín.
Tekið verður ofan fyrir hinum þekkta listamanni Birgi Andréssyni (1955-2007), fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1995. Á sýningunni verða verk þar sem Birgir kannar tengsl sjónrænnar skynjunar og tungumálsins með munnlegum hestalýsingum.“
Þátttakendur í sýningunni: Hrafnkell Birgisson – Gígja Einarsdóttir -Gréta Vilborg Guðmundsdóttir – Kristín Garðarsdóttir – Ásta Guðmundsdóttir – Dögg Guðmundsdóttir – Una Lorenzen – Rut Sigurðardóttir – Spessi – Benni Valsson – Andersen & Lauth – Erna Einarsdóttir – Jör by Guðmundur Jörundsson – Mundi-Þorkell Sigurður Harðarson.
Sýningin stendur til 29. júní.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári