Diddi ekki tilnefndur til íþróttamanns ársins
Sigurbjörn Bárðarson er ekki tilnefndur í kjöri til íþróttamanns ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna, þrátt fyrir frábæran árangur á árinu. Sigurbjörn hefur þrisvar verið tilnefndur og einu sinni hlotið titilinn. Sjö af þeim tíu sem tilnefndir eru í þetta sinn eru boltaíþróttamenn, þá ein sundkona, ein frjálsíþróttakona og ein fimleikakona. Þess skal getið að fréttamenn í „hófapressunni“ eru ekki í Samtökum íþróttafréttamanna og eiga ekki sjálfgefinn rétt í samtökin, þótt þeir fjalli um íþróttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári