Frúin fína og sólin skín – video
Áhorfendabrekka Vindheimamela er þéttsetin spjaralitum gestum Landsmóts. Andrúmsloftið er dásamlegt, fólk nýtur sín og þeirra glæsisýninga sem fara fram á gæðingavellinum.
Ein af glæsilegustu konum dagsins er þó eflaust hún Ingibjörg Ólafsdóttir frá Krossi sem er hér á vegum hestamannafélagsins Svaða að veita verðlaun á Landsmóti, prúðbúin í íslenskum þjóðbúning með hin túrkisbláu gleraugu sem verið er að dreifa til áhorfenda þeim að kostnaðarlausu.
Með fylgir myndskeið Hennings Drath frá þessum fallega sumardegi og þegar Hrossarækt.is afhenti Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna rausnarlegan styrk í morgun.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni