Uppgjörið í kvöld á Eiðfaxa TV
Eiðfaxi TV sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni.
Í kvöld kl 18:00 kemur út fjórði þáttur af Uppgjörinu þar sem þeir Arnar Bjarki Sigurðsson og Anton Páll Níelsson fara yfir síðasta keppniskvöld deildarinnar en þá var keppt í gæðingalist.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni á Eiðfaxa TV. Seinna í kvöld kl. 20:00 verður sýndur nýjasti þátturinn af Á MÓTSDEGI en Ásta Björk Friðjónsdóttir fylgdi eftir Jakobi Svavari Sigurðssyni þegar hann keppti á Hrefnu frá Fákshólum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH