Úrslit í fimmgangi Uppsveitadeildar Íshesta

  • 16. mars 2013
  • Fréttir
Úrslit í fimmgangi Uppsveitadeildar Íshesta

“Góð stemning og fullt hús var þegar fimmgangur í uppsveitadeild Íshesta fór fram í reiðhöllinni á Flúðum á föstudagskvöldið.  Firnasterkir hestar mættu til leiks og úrslitin  réðust þegar langt var liðið á kvöld.  Sigurvegari í fimmgangi varð Guðmann Unnsteinsson á Prins frá Langholtskoti með einkunnina 6,89.  Hann var efstur eftir forkeppnina og hélt sínu sæti með fallegri og agaðri reiðmennsku á góðum hesti.  Í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir á Ramm frá Höfðabakka og í þriðja sæti varð Ólafur Ásgeirsson á Álm frá Skjálg eftir hlutkesti móti Hólmfríði Kristjánsdóttur en þau urðu jöfn í einkunn og þurfti að grípa til hlutkestis. Góður rómur var gerður að reiðmennsku og hestakosti og falleg tilþrif sáust.  

Eftir tvær keppnir er lið Baldvins og Þorvalds efst með 36 stig en lið Kílhrauns í öðru sæti með 29 stig.  Stuðmenn eru í þriðja sæti með 12 stig og Frumherjar og Jáverk jöfn í fjórða með 10 stig.  Lið North Rock er í sjötta sæti með 8 stig og Víkingarnir með 5 stig. 

Helga Una Björnsdóttir í liði Baldvins og Þorvalds stendur efst í einstaklingskeppni með 19 stig og fast á hæla hennar fylgir Guðmann Unnsteinsson úr liði Kílhrauns með 18 stig og í þriðja sæti Ólafur Ásgeirsson úr liði Baldvins og Þorvalds með 17 stig.  Hólmfríður Kristjánsdóttir úr liði Kílhrauns er með 11 stig og í fimmta sæti er Þórarinn Ragnarsson úr liði Frumherja með 10 stig.

Síðasta keppnin verður 19.apríl en þá verður keppt í tölti og flugskeiði.  

Látið ykkur líka við Reiðhöllina á Flúðum á fjasbókinni,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link