Vornætur Helga Friðriks
Vornótt frá Hólabrekku sló heldur betur í gegn í töltkeppni Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum í gærkvöldi. Hún hlaut 8,23 í forkeppni, sem er veggur sem flesta knapa dreymir um að komast yfir, og 8,89 í einkunn í úrslitum, sem er firna há einkunn. Knapi á Vornótt var Viðar Ingólfsson, sem einnig er þjálfari hryssunar. Eigandi hennar er Ingólfur Jónsson.
Jens Einarsson:
Ræktandi Vornóttar er Helgi Friðriksson á Hólabrekku í Skagafirði, áður á Úlfsstöðum í Skagafirði. Hann á margar fallegar „Vornætur“ í hrossaræktinni. Frá Úlfsstöðum hafa komið margir þekktir gæðingar og má þar nefna systkinin Hendingu, Hátíð og Háfeta frá Úlfsstöðum, undan Hörku frá Úlfsstöðum, Sörladóttur frá Sauðárkróki. Vornótt er með fyrstu verðlaun í kynbótadómi, 8,04 í aðaleinkunn. Sýnd 5 vetra. Sköpulagið er ekki úrval, 7,74, en kostir upp á 8,25, þar af 8,0 fyrir skeið. Sýnandi Erlingur Erlingsson.
Þegar skoðuð er ætt Vornóttar þá er það ekki fínlegur og mjúkur töltari sem kemur fyrst upp í hugann. En það undirstrikar enn og aftur hve óútreiknanleg hrossaræktin er. Vornótt er sannanlega gullmoli í röðum töltara og hefur tekið stórstígum framförum undir hnakknum hjá Viðari. Á LM2012 komust þau í B úrslit í tölti og á Íslandsmóti í A úrslit. Nú stefnir allt í að þau muni berjast um toppsætið á mótum þessa keppnistímabils – og Vornótt á vissulega framtíðina fyrir sér sem keppnishross ef hugur eigandans stefnir í þá átt. En hún er vissulega girnileg ræktunarhryssa og því ekki sjálfgefið að hún verði „ungfrú“ alla ævi.
Vornótt er undan Vöku frá Úlfsstöðum, Feykisdóttur frá Hafsteinsstöðum, og Kolvaki frá Syðri-Hofdölum, Kolfinnssyni frá Kjarnholtum. Kolvakur er geldingur en var notaður á allnokkrar hryssur sem foli. Undan honum er nefndur Háfeti frá Úlfsstöðum, sem var reiðskjóti Jóns Bjarna Smárason á LM2011 og á Íslandsmóti yngri flokka 2011, og Eyjólfs Þorsteinssonar á LM2012 og fleiri mótum það ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH