Gustur frá Grund fallinn
Stóðhesturinn Gustur frá Grund drapst úr hrossasótt fyrir skemmstu, 24. vetra. Gustur sló í gegn á FM1993 í Skagafirði, þá fimm vetra. Einkum fyrir afar glæsilegt brokk og háan, en mjúkan og fimlegan fótaburð. Sinn hæsta dóm hlaut Gustur á vorsýningu Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti 1997: Fyrir sköpulag 7,88 og fyrir kosti 8,69. Þar af 9,5 fyrir tölt, 10,0 fyrir brokk, og 9,5 fyrir vilja.
Gustur var undan Flugsvinn frá Bræðratungu og Flosa frá Brunnum, síðasta hornfirska stóðhestinum, það er að segja sem var að meiri hluta af gamla hreinræktaða stofninum. Það má því segja að Gustur hafi verið síðasti alvöru „hornfirski“ stóðhesturinn, þótt blóðið hafi verið farið að þynnast nokkuð.
Ræktandi hans var Sigurgeir Sigmundsson á Grund í Hrunamannahreppi. Samkvæmt WorldFeng var hann seldur Bruno og Helgu Podlech á Wiesenhof í Þýskalandi árið 2001 og þá fluttur út. Margir sáu eftir þessum sérstæða gæðingi úr landi. En líkt og margir aðrir stóðhestar sem ræktendur hafa syrgt við brottför, þá fékk hann ekki svo mikla notkun hér á landi að eigandinn sæi ástæðu til að halda í hann.
Gustur á 453 skráð afkvæmi. 97 eru með fullnaðardóm og 36 með fyrstu verðlaun. Hann er með þokkalegt kynbótamat, aðaleinkunn 114, best fyrir fegurð 116, höfuð 117, og vilja 118. Hann er með +10 í afkvæmafrávik, sem gefur tilefni til að áætla að hann hefði getað gefið fleiri úrvalsgripi með góðum hryssum.
Frægasta afkvæmi Gusts er stóðhesturinn og gæðingurinn Geisli frá Sælukoti (8,28), sem tvisvar varð efstur í A flokki á Landsmóti. Aðrir þekktir eru stóðhestarnir Kolskeggur frá Oddhóli (8,39), sem einnig var hársbreidd frá því að vinna sama titil á LM2008, Óttar frá Hvítárholti 8,36, sem var í úrslitum í A flokki á LM2012 í Reykjavík og Gustur frá Lækjarbakka (8,16) sem var í efsta sæti í ungmennaflokki á LM2008. Hæst dæmda afkvæmi Gusts er danskræktaða hryssan Tíbrá frá Vinkærgård með 8,41 í aðaleinkunn.
Þess má geta að Flosi frá Brunnum drapst einnig úr hrossasótt, en þó mun yngri. Þessi kvilli hefur verið nokkur ættarfylgja í afkvæmum Flosa ásamt ropa. Kvillar sem stundum virðast fylgja örgeðja gæðingum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH