Lið Spóns.is í Meistaradeildinni

  • 12. janúar 2012
  • Fréttir
Lið Spóns.is í Meistaradeildinni

Næsta lið sem við kynnt til leiks í Meistaradeild í hestaíþróttum er Spónn.is en það kom nýtt inn í deildina í fyrra. Liðsstjóri liðsins er Sigursteinn Sumarliðason og með honum eru þeir Elvar Þormarsson, Ólafur Ásgeirsson og Ævar Örn Guðjónsson.

Bjóðum við þá félaga velkomna til leiks.

Sigursteinn Sumarliðason, liðsstjóri, stundar tamningu og þjálfun á Selfossi. Hann var kjörinn gæðingaknapi ársins 2010 og íþróttaknapi ársins 2011, varð heimsmeistari í gæðingaskeiði 2007. Landsmótssigurvegari og Íslandsmeistari í tölti 2011.

Elvar Þormarsson stundar tamningar og þjálfun á Hvolsvelli. Stundar hrossarækt ásamt fjölskyldu sinni á Strandarhjáleigu og hlutu þau titilinn ræktunarbú ársins 2009. Hann varð Íslandsmeistari í fjórgangi 2010 og hefur verið að gera góða hluti í keppni og sýningum á undanförnum árum.

Ólafur Ásgeirsson hefur stundað tamningar og þjálfun að Vesturkoti, Skeiðum, um nokkurt skeið. Ólafur hefur staðið framarlega á keppnisbrautinni undanfarin ár og einnig verið að gera góða hluti í kynbótasýningum.

Ævar Örn Guðjónsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð á félagssvæði Andvara. Á undanförnum árum hefur hann náð glæstum árangri á keppnisbrautinni sem og á kynbótabrautinni.

Fengur ehf. (spónn.is) var stofnað á árinu 2009 af Sigurði Halldórssyni. Fyrirtækið rekur meðal annars endurvinnslu sem sett var upp í framhaldi af tilraunum sem gerðar voru á árinu 2008 um nýtingu timburs sem fellur til hér á landi til framleiðslu á spón. Lögð er áhersla á að nota vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar. Í dag framleiðir endurvinnslan spón fyrir íslenskan landbúnað. Áætlað er að framleiða um 3000 tonn á ári fyrir innlendan markað.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link