Sjálfboðaliðakynning

  • 4. mars 2013
  • Fréttir
Sjálfboðaliðakynning

„Hefur þú tíma aflögu 1 sinni í viku í klukkutíma? Hefurðu áhuga á mannlegum samskiptum? Viltu vera í frábærum félagsskap?Ertu jákvæður og vilt gefa af þér?

 Þá erum við að leita að þér!!

Hestamannafélagið Hörður – Fræðslunefnd fatlaðra býður upp á sjálfboðaliðakynningu á reiðnámskeiðum fyrir börn og ungmenni með fötlun þann 6. mars næstkomandi í félagsheimili Harðar Mosfellsbæ frá kl. 20 – 22.
Markmiðið er að kynna fyrir þeim sem hafa áhuga á starfinu hvað felst í því að vera sjálfboðaliði og aðstoða okkur með nemendur okkar á námskeiðinum okkar. 
Sendið okkur póst á netfangið [email protected] til að skrá ykkur á kynninguna eða hringið í síma 8997299. 
Léttar veitingar í boði.
ALLIR VELKOMNIR!,“ segir í tilkynningu frá Hestamannafélaginu Herði

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link