Siggi Sæm. fararstjóri ferðar á World toelt
Í samvinnu við Ice Events er Úrval – Útsýn með ferð á World Tölt sem haldið verður í Arena Fyn í Óðinsvéum í Danmörku.
Erum með mjög takmarkað magn miða á þennan frábæra viðburð.
Þarna eru allir þeir bestu í tölti og fjórgangi samankomnir á einum stað. Að auki verða þarna sýningar, alls konar uppákomur, ráðstefnur og sölubásar.
Fararstjóri þessarar ferðar er Sigurður Sæmundsson.
Flogið er á Kaupmannahöfn fimmtudaginn 23.febrúar og heim á sunnudagskvöldinu 26.febrúar.
Frá flugvelli er ekið til Odense. Mótið er föstudaginn 24.feb og laugardaginn 25.feb 2012
Gist er á 4 stjörnu hótelinu Best Western í Odense sem er staðsett þar sem að sýningin fer fram.
Á hótelinu er veitingastaður, bar og setustofa, gufubað og líkamsræktaraðstaða. 109 herbergi sem öll innihalda öryggishólf og ókeypis dagblöð. Sjónvörp eru með gervihnattarásum.
Einstök ferð sem engin má missa af. Nánari upplýsingar eru á www.urvalutsyn.is undir íþróttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson