Fjörugt mót í Mosó – Úrslit Bikarkeppni
Bikarkeppni hestamannafélagana á höfuðborgarsvæðinu fór fram í kvöld í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. Rúmlega 100 manns fylgdust með þessari snörpu og fjörugu keppni. Keppt var í tveimur gerðum þrígangskeppni.
Í keppni fegurðartölts, brokks og stökks leiddi Mánastúlkan Ólöf Rún Guðmundsdóttir á Losta frá Kálfholti eftir forkeppni, Harðarmaðurinn Elías Þórhallsson og Dimmalimm frá Þúfu var annar og Skúli Þór Jóhannsson og Urður frá Skógum úr hestamannafélaginu Sörla voru þriðju eftir forkeppni.
Í úrslitum skutust Skúli Þór og Urður fram úr Elíasi og Dimmalimm eftir dúndur brokksýningu en Ólöf Rún og Losti sigruðu flokkinn nokkuð örugglega.
Úrslit í keppni fimmgangshesta urðu nokkuð óvænt. Daníel Ingi Smárson og Nói frá Garðsá úr Sörla leiddu eftir forkeppni en fast á hæla hans var félagi hans í Sörla, Adolf Snæbjörnsson og Gleði frá Hafnarfirði. Erla Katrín Jónsdóttir frá Fáki var þriðja á stóðhestinum sínum Flipa frá Litlu-Sandvík. Heimafólk úr Herði, Súsanna Ólafsdóttir á Hylli frá Hvítárholti og Jóhann Þór Jóhannesson á Ástareldi frá Stekkjardal, voru svo fjórðu og fimmtu inn í úrslit.
Súsanna og Hyllir stungu hins vegar öðrum keppendum ref fyrir rass með heillandi sýningu í úrslitum og hlutu þau hæstu einkunnir og efsta sætið.
Úrslit mótsins voru eftirfarandi:
Fegurðartölt – Brokk – Stökk
- Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Losti frá Kálfholti – Máni
- Skúli Þór Jóhannsson og Urður frá Skógum – Sörli
- Elías Þórhallsson og Dimmalimm frá Þúfu – Hörður
- Halldóra Huld Ingvarsdóttir og Hellingur frá Blesastöðum – Hörður
- Vilfríður F. Sæþórsdóttir og Fanney frá Múla – Fákur
Tölt – Brokk – Skeið
- Súsanna Ólafsdóttir og Hyllir frá Hvítárholti – Hörður
- Daníel Ingi Smárason og Nói frá Garðsá – Sörli
- Adolf Snæbjörnsson og Gleði frá Hafnarfirði – Sörli
- Erla Katrín Jónsdóttir og Flipi frá Litlu-Sandvík – Fákur
- Jóhann Þór Jóhannesson og Ástareldur frá Stekkjadal – Hörður
Næsta Bikarkeppni fer fram föstudaginn 11. mars í Mána og þá verður keppt í tölti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH