Skráning á Skeiðleika í fullum gangi

Skráning fyrir skeiðleikana á fimmtudagskvöld er í fullum gangi og fer eins og venjulega fram í gegnum Sportfeng og velja þarf skeiðfélagið sem mótshaldara. Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudags 3. júní.
Skeiðleikarnir hefjast klukkan 19:00 á fimmtudag og Eiðfaxi TV mun sýna beint frá mótinu.
Skeiðleikarnir fara fram með hefðbundnu sniði, þar sem byrjað er á 250 m. þá 150 m. og að lokum 100 m.
Athygli er vakin á því að á skeiðleikum er einungis boðið uppá fullorðinsflokk og geta því ungmenni keppt upp fyrir sig með fullorðnum.