Kynningarfundur landsliðsnefndar
Landsliðsnefnd LH boðar til kynningarfundar á miðvikudaginn 20. maí kl 18:00 í húsnæði Ásbjörns Ólafssonar ehf, Köllunarklettsvegi 6, Reykjavík, þar sem ‘Lykillinn að vali landsliðsins’ fyrir HM 2015 í Herning verður kynntur. Einnig verður farið yfir knapayfirlýsinguna, sem er með breyttu sniði og er mun nákvæmari en fyrri ár.
Að auki verður skrifað undir glæsilegan samstarfs- og styrktarsamning við Ásbjörn Ólafsson ehf.
Boðið verður upp á léttar veitingar og væri mjög gott ef áhugasamir tilkynni komu sína á skrifstofu LH sem allra fyrst á [email protected]
Með bestu kveðjum,
Landsliðsnefnd LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH