Námskeið fyrir ungt keppnisfólk – skráning
Hestamannafélagið Léttir fyrirhugar að halda námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni í Top Reiter höllinni í byrjun mars.
Námskeiðið verður aðallega ætlað þeim sem eru lengra komnir og hafa hug á sýninga og keppnisþjálfun. Námskeiðið verður þannig uppbyggt, að þetta verða fimm skipti með tveggja vikna fresti. Kennari verður Ásdís Helga Sigursteinsdóttir reiðkennari frá Hólum.
Léttisfélagar sitja fyrir ef fullbókast á námskeiðið.
Námskeiðsgjald kr. 10.000.- fyrir Léttisfélaga og 15.000.- fyrir utanfélagsmenn.
Minnt er á að þeir Léttisfélagar sem ekki hafa nýtt sér Samherjastyrkinn geti nýtt sér hann í þetta námskeið.
Áhugasamir skrái sig inn á [email protected] fyrir föstudaginn 25. febrúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH