Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Minnum á haustfund Hrossaræktarsamtaka Suðurlands sem haldinn verður í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis,..
Hliðskjálf í kvöld, þriðjudaginn 19. október kl. 20:00. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands verður með framsögu á fundinum. Einnig munu Gunnar Arnarson og Hulda Gústafsdóttir, hrossaútflytjendur, upplýsa menn um horfur á útfluttningi hrossa í haust. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH