Ásmundur og Hlökk á toppnum

Það er óhætt að segja að veðurguðir hafi ekki leikið við keppendur í dag á Íslandsmótinu en enginn er verri þó hann vökni.
Það hafa sést ótrúleg tilþrif í dag en forkeppni er lokið í fjórgangi í meistaraflokki þar sem efst standa Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði með 7,90 í einkunn. Á eftir koma þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti með 7,77 og Árni Björn Pálsson á Krika frá Krika með 7,70.
Ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Flaumur frá Fákshólum koma fjórðu inn í A úrslit og jöfn þeim eru þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Hulinn frá Breiðsstöðum með 7,47 í einkunn. Hér fyrir neðan eru heildar niðurstöður úr forkeppni í fjórgangi meistaraflokki.
Betur verður farið yfir keppni dagsins á EiðfaxaTV í kvöld í Uppgjörsþætti Arnars Bjarka en hægt er að horfa á allt mótið í beinni á EiðfaxaTV. Við mælum með líka að allir næli sér í nýjustu uppfærslu af HorseDay appinu en þar eru allar helstu upplýsingar um mótið ásamt skemmtilegri nýjung sem gerð er í samstarfi við okkur hjá Eiðfaxa og Oddur Ólafsson framkvæmdastjóri HorseDay kynnir betur í uppgjörsþættinum í kvöld.
Næst á dagskrá er fjórgangur V1 í ungmennaflokki
Fjórgangur V1 – Meistaraflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 7,90
2 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,77
3 Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika 7,70
4 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,47
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hulinn frá Breiðstöðum 7,47
6 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 7,43
7-8 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli 7,40
7-8 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka 7,40
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum 7,37
10 Helga Una Björnsdóttir Ósk frá Stað 7,33
11 Viðar Ingólfsson Logi frá Staðartungu 7,20
12 Birgitta Bjarnadóttir Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 7,17
13 Sigurður Vignir Matthíasson Safír frá Mosfellsbæ 7,13
14 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum 7,10
15-16 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 7,07
15-16 Teitur Árnason Drangur frá Steinnesi 7,07
17 Bylgja Gauksdóttir Goði frá Garðabæ 7,00
18-19 Benjamín Sandur Ingólfsson Áki frá Hurðarbaki 6,97
18-19 Hanna Rún Ingibergsdóttir Hvarmur frá Brautarholti 6,97
20-21 Valdís Björk Guðmundsdóttir Hervar frá Svignaskarði 6,87
20-21 Lea Schell Silfurlogi frá Húsatóftum 2a 6,87
22-23 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 6,80
22-23 Teitur Árnason Móses frá Flugumýri II 6,80
24 Sara Sigurbjörnsdóttir Hugur frá Hólabaki 6,77
25 Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti 6,73
26 Helga Una Björnsdóttir Hátíð frá Efri-Fitjum 6,67
27 Sigrún Rós Helgadóttir Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,53
28 Sara Sigurbjörnsdóttir Dökkvi frá Engjavatni 0,00