Védís og Jón Ársæll jöfn í efsta sæti

Védís Huld Sigurðardóttir og Breki frá Sunnuhvoli Mynd: Nicki Pfau
Forkeppni í slaktaumatölti í ungmennaflokki er lokið en þar eru þau jöfn á toppnum Védís Huld Sigurðardóttir og Breki frá Sunnuhvoli og Jón Ársæll Bergmann á Díönu frá Bakkakoti bæði með 7,50 í einkunn. Þetta er þriðja hringvallagreinin af þremur sem Jón Ársæll leiðir eftir forkeppni.
Fanndís Helgadóttir kemur síðan rétt á eftir þeim á Ötul frá Narfastöðum með 7,30 í einkunn en þau eru ríkjandi Íslandsmeistarar í greininni í unglingaflokki.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr forkeppni.
Ungmennaflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-2 Védís Huld Sigurðardóttir Breki frá Sunnuhvoli 7,50
1-2 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti 7,50
3 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 7,30
4 Jón Ársæll Bergmann Skjóni frá Skálakoti 7,27
5 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Arion frá Miklholti 7,27
6 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Lifri frá Lindarlundi 7,23
7 Sigurður Baldur Ríkharðsson Loftur frá Traðarlandi 7,17
8-9 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kjarnveig frá Dalsholti 7,07
8-9 Jón Ársæll Bergmann Bassi frá Grund II 7,07
10 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Polka frá Tvennu 7,00
11 Kolbrún Sif Sindradóttir Bylur frá Kirkjubæ 6,97
12 Svandís Aitken Sævarsdóttir Huld frá Arabæ 6,93
13 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 6,90
14 Matthías Sigurðsson Kostur frá Þúfu í Landeyjum 6,77
15 Matthías Sigurðsson Hlekkur frá Saurbæ 6,70
16-17 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sindri frá Lækjamóti II 6,60
16-17 Bil Guðröðardóttir Hryggur frá Hryggstekk 6,60
18 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Hrynjandi frá Kviku 6,50
19 Anika Hrund Ómarsdóttir Afródíta frá Álfhólum 6,47
20 Ólöf Bára Birgisdóttir Jarl frá Hrafnagili 6,40
21 Selma Leifsdóttir Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 6,27
22 Lilja Rós Jónsdóttir Safír frá Götu 6,10
23 Ísak Ævarr Steinsson Luxus frá Eyrarbakka 5,97
24 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 5,93
25 Þórdís Agla Jóhannsdóttir Laxnes frá Klauf 5,53
26 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá 0,00