Hans og Sigurbjörg Íslandsmeistarar í 150 m. skeiði

Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Myndir: Gunnhildur Ýrr
Eftir 250 m. skeiðið og búið var að mæla brautina til að geta staðfest heimsmet Konráðs þá var farið í 150 m. skeiðið.
Það sama var upp á teningnum þar, ekki heimsmet, en margir að setja bestu tímana sína. Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði áttu frábæra spretti og fóru á besta tímanum sínum 13,93 sem var jafnframt besti tíminn og Íslandsmeistaratitilinn þeirra.
Annar varð Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II með tímann 14,10 sek. og í þriðja sæti varð Þorgeir Ólafsson á Gruni fra Lækjarbrekku 2 með 14,19 sek.
Sigurbjörg Helgadóttir og Hörpurós frá Helgatúni áttu besta tímann í ungmennaflokknum og í raun eina tímann. Þau fóru 150 metrana á 14,83 sek og eru Íslandsmeistarar í 150 m. skeiði í ungmennaflokki.

Sigurbjörg og Hörpurós
Skeið 150m P3
Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 13,93
2 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,10
3 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 14,19
4 Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1 14,35
5 Árni Björn Pálsson Þokki frá Varmalandi 14,35
6 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 14,41
7 Guðmundur Björgvinsson Svala frá Rauðalæk 14,95
8 Birna Olivia Ödqvist Salka frá Fákshólum 15,24
9 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 15,53
10 Sigurður Vignir Matthíasson Tryggur frá Selfossi 16,10
11 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk 16,11
12-13 Daníel Gunnarsson Skálmöld frá Torfunesi 0,00
12-13 Sigurður Heiðar Birgisson Tign frá Ríp 0,00
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigurbjörg Helgadóttir Hörpurós frá Helgatúni 14,83
2-3 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 0,00
2-3 Ingunn Rán Sigurðardóttir Mist frá Einhamri 2 0,00