Meistaradeild UMFÍ og LH frestað til 18. febrúar
Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta fyrsta móti Meistaradeildar UMFÍ og LH sem vera átti í Reiðhöllinni í Víðidal á morgun, laugardaginn 12. febrúar, að er fram kemur í fréttatilkynningu frá aðstandendum mótsins. Verður mótið því haldið föstudaginn 18. febrúar n.k. í staðinn og keppt í fjórgangi og T2 eins og til stóð.
Enn fremur var ákveðið að framlengja skráningarfrestinn á mótið fram til fimmtudagsins 17. febrúar.
Senda skal skráningu á [email protected]
Greiða þarf við skráningu, kr 2.000 á grein. Leggja þarf inn á reikning: 0338-26-301646, kennitala: 020455-3659.
Aðeins er hægt að skrá einn hest í hvora grein. Riðin verða A og B úrslit.
Þetta mót er tilvalið að fyrir þá sem vilja spreyta sig á að ríða meistaraprógramm, það er 1 inná í einu í fjórgangi en 3 í tölti T2.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH