Ístölt 2010 á vegum LH
Landsliðsnefnd LH vill vekja athygli á þeim ístöltum sem haldin verða í vetur til styrktar íslenska landsliðinu í hestaíþróttum.
„Svellkaldar konur“ verður haldið þann 13.mars nk. í Skautahöllinni í Laugardal. Mótið hefur verið gríðarlega vinsælt síðustu ár og vegna mikillar aðsóknar á undanförnum árum hefur verið ákveðið að leyfa eingöngu 100 skráningar, fyrstur kemur fyrstur fær.
„Þeir allra sterkustu“ verður haldið þann 3.apríl, athugið breytt dagsetning. Þar mæta allra sterkustu ístöltarar landsins, s.s. Íslandsmeistarar, heimsmeistarar, Ístöltmeistarar fyrri ára og margir fleiri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH