Folaldsýning Hrossaræktarfélags Hraungerðishrepps
„var haldin í reiðhöll Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi 24.febrúar sl. Alls voru 33 folöld sýnd og dómarar voru Ársæll Jónsson frá Eystra-Fróðholti og Ásmundur Þórisson frá Hvolsvelli og þakkar stjórn félagsins þeim fyrir góð störf. Verðlaunin voru heldur ekki að verri endanum. Í hryssuflokknum gaf Hannes Ottesen folatoll undir Dyn frá Dísarstöðum og í hestaflokknum gaf Bragi Birgisson Efri-Gegnishólum folatoll undir Þröst frá Efri-Gegnishólum. Fjöldi fólks mætti til að horfa á fjöldann allann af fallegum folöldum.
Hryssuflokkur úrslit:
1.sæti Orka frá Litla-Ármóti rauðblesótt F: Ketill frá Kjarnholtum I M: Nútíð frá Litla-Ármóti Mf: Sörli frá Búlandi rækt.: Ellen Bergan/Baldur Sveinsson eig: Sunna Skeggjadóttir
2.sæti Mánadís frá Selfossi brúnskjótt F: Þristur frá Þorlákshöfn M: Dropadís frá Miðey Mf: Dropi frá Haga Eig/rækt: Rúnar Andrésson og Jóhanna Haraldsdóttir
3.sæti Skuld frá Langsstöðum dökkjörp F: Hrói frá Skeiðháholti M: Hlýja frá Langsstöðum Mf: Víglundur frá Vestra-Fíflholti Eig/rækt: Ingibjörg Einarsdóttir
Hestaflokkur úrslit:
1.sæti Eldur frá Hrafnsholti rauður F: Frakkur frá Langholti I M: Hekla frá Norður-Hvammi Mf: Hektor frá Akureyri Eig/rækt: Elísabet S. Gísladóttir
2.sæti Stafn frá Oddgeirshólum F: Vökull frá Árbæ M: Djásn frá Oddgeirshólum Mf: Esjar frá Holtsmúla Eig/rækt: Magnús G. Guðmundsson
3.sæti Snjall frá Oddgeirshólum F: Jakob frá Árbæ M: Æsa frá Oddgeirshólum Mf: Kveikur frá Miðsitju Eig/rækt: Þuríður og Steinþór Oddgeirshólum
Vinsælasta folaldið, kosið af áhorfendum var Eldur frá Hrafnsholti sem sigraði hestaflokkinn jafnframt.
Hér koma tölur úr forkeppni, en röðun breyttist í einhverjum tilfellum í úrslitum. Fleiri myndir má sjá hér á heimasíðu Hrossaræktarfélags Hraungerðishrepps
Röð Nafn B H
1 Orka frá Litla-Ármóti 8,50 8,50
2 Mánadís frá Selfossi 8,50 8,30
3 Glódís frá Túni 8,40 8,20
4 Þoka frá Brúnastöðum 8,20 8,40
5 Glinggló frá Reykjaseli 8,20 8,30
6 Skuld frá Langsstöðum 8,20 8,30
7 Jódís frá Hæli 8,10 8,30
8 Kantata frá Hjálmholti 8,00 8,30
9 Vakning frá Selfossi 8,10 8,10
10 Fiðla frá Brúnastöðum 8,20 8,00
11 Spurning frá Selfossi 8,10 8,10
12 Jörð frá Miðholti 8,00 8,20
13 Vaka frá Skeggjastöðum 8,00 8,10
1 Eldur frá Hrafnsholti 8,50 8,60
2 Snjall frá Oddgeirshólum 8,50 8,50
3 Hrynjandi frá Litlu-Reykjum 8,50 8,40
4 Stafn frá Oddgeirshólum 8,40 8,40
5 Goði frá Litlu-Reykjum 8,40 8,40
6 Alheimur frá Litlu-Reykjum 8,40 8,40
7 Eitill frá Miðholti 8,30 8,40
8 Nagli frá Litlu-Reykjum 8,40 8,30
9 Sigurfari frá Brúnastöðum 8,30 8,30
10 Hábeinn frá Hrafnsholti 8,30 8,30
11 Heljar frá Oddgeirshólum 8,40 8,10
12 Bláinn frá Bár 8,20 8,30
13 Krakatindur frá Hæli 8,20 8,20
14 Skuggi frá Oddgeirshólum 8,10 8,30
15 Sörli frá Brúnastöðum 8,10 8,30
16 Þyrill frá Langsstöðum 8,30 8,10
17 Valur frá Skeggjastöðum 8,20 8,10
18 Árvakur frá Syðra-Velli 8,10 8,10
19 Sváfnir frá Oddgeirshólum 8,10 8,10
20 Gammur frá Hrafnsholti 8,00 8,00, “ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH