Bjórkvöld Fáks að lokinni Stórsýningunni
Að venju er hið skemmtilega bjórkvöld Fáks í félagsheimilinu eftir Stórsýninguna á laugardagskvöldið. Seiðandi diskó, fljótandi veitingar er ávísun á stórskemmtileg kvöld með stórskemmtilegum hestamönnum, að vísu misfríðum en skemmtilegum.
Stórsýningin byrjar kl. 21.00 og kostar kr. 2.000 inn. Frítt verður inn á Bjórkvöldið og ganga sýningargestir fyrir þar sem það stefnir í mikinn fjölda hestamanna sem ætlar að skemmta sér þetta kvöld.
Flottir hestar, bjór og hestamenn er ávísun á skemmtilegt kvöld í Víðidalnum. Allir skemmtilegir hestamenn mæta – hvar verður þú?
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH