Meistaradeild í hestaíþróttum tilkynning
„Laust er til umsóknar fyrir keppnislið að sækja um að komast í umspil fyrir þátttökurétt fyrir keppnisárið 2014 við það keppnislið sem var með lægsta heildarskorið í mótaröð MD sem lauk 5.apríl s.l
Þeir aðilar sem hafa áhuga á að sækja um að koma með keppnislið verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
· Fjórir knapar í liði
· Tilnefningar til knapaverðlauna sl. Tvö ár
· Verða að vera með skráðan árangur á World Ranking lista
Keppt verður í eftirfarandi greinum
Tölt T1
Fjórgang
Fimmgang
Það er eingöngu forkeppi sú einkunn gildir, enginn úrslit riðin.
Þrír knapar keppa fyrir hvert lið sem sækja um þátttöku.
Umsóknarfrestur er 10 dagar og lýkur 16.maí, umspilið verður fimmtudaginn
30. maí n.k kl: 20:00 á Ingólfshvoli Ölfusi.
Allar umsóknir sendist á netfangið [email protected] nánari upplýsingar veitir Kristinn Skúlason í síma 822-7009,segir í tilkynningu frá Meistaradeildinni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH