Fræðsla um íþróttadóma
„Þriðjudaginn 12. mars munu alþjóðadómararnir Hulda G. Geirsdóttir og Hörður Hákonarson fræða hestamenn um íþróttadóma, áherslur í dómum og dómstigann sem íþróttadómarar vinna eftir.
Einnig mun Hafliði Halldórsson liðsstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum fara yfir verkefnin og stöðu mála varðandi undirbúning LH fyrir HM 2013 í Berlín.
Allir hestamenn velkomnir og hefst fundurinn stundvíslega kl. 19:00 í húsakynnum ÍSÍ,“ segir í tilkynningu frá Landsliðsnefnd LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH