Reiðnámskeið
Kennarar: Feðginin Yoni Blom og Guy Blom frá Hollandi
Guy Blom (f. 1958) – Hefur stýrt reiðskóla í Hollandi fyrir íslenska hesta síðan 1979. Hann er menntaður sjúkraþjálfari, dýrasjúkraþjálfari, hestakírtópraktor og er kennari í dýrasjúkraþjálfun við CDB Barneveld Hollandi (skóli fyrir þjálfun og umhirðu dýra).
Yoni Blom (f. 1985) – Sjúkraþjálfari, dýrasjúkraþjálfari. FeiF-þjálfari B-C. Hefur tekið þátt í 6 heimsmeistaramótum íslenska hestsins. Hún komst 5x í B – úrslit og 1x í A úrslit á Tyrson frá Saringhof. Á graðhestinum Bjarti frá Aquadraat komst hún í B – úrslit í fjórgangi í Herning (2015). Hún er með sína eigin þjálfunar- og endurhæfingarstöð á bóndabæ foreldra sinna í Sint Oedenrode í Hollandi.
Guy og Yoni hafa víðtæka reynslu í ofangreindri kennslu, hafa ferðast víða með námskeiðin og eru mjög eftirsótt. Það er því fengur fyrir íslenska reiðmenn og knapa að fá þau til landsins og að njóta fagþekkingar og reynslu þeirra til þess að bæta ásetu, byggja hestinn rétt upp í þjálfun og fyrirbyggja eða leiðrétta vandamál. Farið verður yfir líffærafræði, aflfræði vöðva og eðlilega hreyfingu hestsins. Þau fjalla jafnframt um hreyfingu fóta og baks, fara í yfirlínuna og út frá því rétta uppbyggingu hestsins.
Kennslan byggir á fyrirlestrum, sýnikennslu og reiðkennslu.
Þátttakendur geta tekið með sér eigin hest.
Hvar: Reiðhöll Eldhesta í Ölfusi
Hvenær: 29. október – 30. október
Verð: 32.000 kr, innifalið er kaffi og meðlæti.
Hægt er að kaupa hádegismat á sanngjörnu verði á Hóteli Eldhesta
Skráning: sendið póst á: [email protected] eða hringið: 896 8181
Einnig er hægt að fara inn á Facebook/viðburðir og skrá sig þar: https://www.facebook.com/events/1567000683608258/
FT styrkir sína félaga um 10.000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH