Grímu og Bjórtölt Harðar
Laugardaginn 21. janúar verður haldið opið Grímu- og bjórtölt í reiðhöllinni í Mosfellsbæ. Mótið verður tvískipt og byrjað verður á yngstu flokkunum kl.1 en ungmenni og fullorðinsflokkarnir verða um kvöldið kl. 19.30.
Skráningargjald í bjórtöltið er 1500 kr, en annars 1000 kr. en þátttaka er frí fyrir polla og börn.
Flokkaskiptingin er:
Kl.13
- Pollar (teymdir)
- Pollar (ríða einir)
- Börn
- Unglingar
Kl. 19.30
- Ungmenni
- Fullorðinsflokkur
- Heldri manna og konu flokkur
- Bjórtölt ( Tveir í braut í einu, tveir hringir riðnir, bannað að fara á stökk, hver keppandi er með eina bjórkönnu og á könnuni er teyp og bætist við tími við hvert teyp sem bjórinn fer niður fyrir, Stig fást fyrir tíma en einnig verða gæði gangtegundarinnar dæmd.)
Verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn í hverjum flokki ( nema pollum) en einnig verða veitt verðlaun fyrir frumlegasta og furðulegasta í fullorðinsflokki.
Skráning verður í höllinni á milli kl. 11 – 13 ( til 12 fyrir yngri flokka) og í síma 893-0094 Gunni Vals eða 861-6691 Jóna Dís á milli kl. 11 – 16. Seldur verður bjór um kvöldið ásamt veitingum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári