Uppskeruhátíð Þyts
Í gærkvöldi var uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur – Húnavatnssýslu og hestamannafélagsins Þyts. Veittar voru viðurkenningar fyrir 3 stigahæstu hross í öllum flokkum, ræktunarbú ársins og hæst dæmda hryssan og hæst dæmdi stóðhesturinn á árinu fengu farandbikara frá Hrossaræktarsamtökunum og síðan fengu stigahæstu knapar sínar viðurkenningar frá Þyt. Ræktunarbú ársins hjá Þyt voru Efri-Fitjar og stigahæstu knapar voru; Ísólfur Líndal Þórisson í 1.flokk, Vigdís Gunnarsdóttir í 2.flokk og Jónína Lilja Pálmadóttir í ungmennaflokki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH