Hátíðleg setningarathöfn
„Það eflir ástina ekkert jafn mikið og að detta af baki,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands en hann þakkaði íslenska hestinum fyrir rómantísk kynni sín af Dorrit.
Setning Landsmótsins fór fram við hátíðlega athöfn í kvöld. Veðrið lék við viðstadda og var stórkostleg sýn að horfa yfir Víðidalinn.
Setningarathöfnin hófst með söng karlakórs Kjalnesinga og Gustskórsins. Eftir sönginn hófst hópreiðin en ánægjulegt var að sjá þennan stórfenglega hóp knapa, unga sem aldna. Margir tóku til máls við setningu mótsins en meðal ræðumanna voru m.a. þeir Dagur B. Eggertson, forseti borgarstjórnar, Jens Iversen, formaður FEIF, og Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamanna, en Haraldur óskaði keppendum allra heilla og áhorfendum góðra stunda.
Ekki var laust við að blaðamaður fengi gæsahúð þegar íslenski þjóðsöngurinn var fluttur af öllum þeim 7000 gestum sem staddir voru í brekkunni og digurbarkalega kóranna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH