Fræðsludagurinn „Léttleiki og frelsi“ einn enn fyrirlesari.
Fræðsludagurinn „Léttleiki og frelsi“ er framundan í Mosfellsbænum og er ýmislegt forvitnilegt þar á dagskrá…
Kristbjörg Halla Magnúsdóttir N.A.A.D.A.C. ráðgjafi heldur erindi þar sem hún mun tala um það sem kallað er „Burnout“ sem er kulnun í starfi. Allir upplifa misgott gengi, hæðir og lægðir í sínu starfi. Kristbjörg mun fjalla um einkenni „kulnunar“ og hvað er til ráða. Hún fjallar meðal annars um það hver hvatinn í starfi getur verið, áhrif velgengni, vandamálið „hroka“ og síðan vonbrigðin og ráðaleysið er ver gengur.
Þetta er án efa erindi sem á erindi við alla starfandi tamningamenn og reiðkennara og geta örugglega allir aðrir einnig nýtt það sér til hagsbóta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári