Sölubásar á Hestadögum í Reykjavík
Vikuna 26. mars til 2.apríl verða haldnir Hestadagar í Reykjavík.
Laugardagurinn 2 .apríl er einn af stærstu dögunum á hátíðinni, þar sem frítt verður inn í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn. Þar verður mikið um að vera allan daginn með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og því er búist er við miklum fjölda í Laugardalinn þennan dag.
Hestaþorp verður staðsett í miðjum garðinum þar sem handverksfólki og öðrum afþreyingarfyrirtækjum stendur til boða að vera með kynningar- og sölubása. Sölubásarnir sem verða á staðnum eru húsin (jólaþorpið) sem er í eigu Hafnafjarðarbæjar. Athugið að aðeins er um einn dag að ræða frá kl. 10-17. Þorpið verður sett upp föstudaginn 1. Apríl.
Verð fyrir leigu á sölubás fyrir daginn er kr 7.500 kr.
Áhugasamir hafið samband við Ingibjörgu sem gefur allar nánari upplýsingar um Hestaþorpið á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH