Bein útsending frá Hrossaræktarráðstefnunni
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, í dag, laugardag 8. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Sýnt er beint frá ráðstefnunni á EiðfaxaTV í opinni dagskrá og hvetjum við fólk til að fylgjast með.
Á dagskrá eru afar áhugaverðir fyrirlestrar um áhrif erfða á gangtegundir hestsins og árangur af skimun og úrvali gegn spatti í íslenska hestinum, yfirferð um hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.
- 13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
- 13:10 Hrossaræktarárið 2025 – Þorvaldur Kristjánsson
- 13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2025 og afkvæmahestar heiðraðir
- 13:50 Verðlaunaveitingar:
- Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
- Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
- Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
- Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
- Kaffihlé
- 14:15 Heiðrún Sigurðardóttir – Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins: Niðurstöður, hagnýting og næstu skref
- 14:40 Sigríður Björnsdóttir – Spatt í íslenska hestinum og árangur af skimun fyrir sjúkdómnum
- 15:25 Hvatningarverðlaun – ungur kynbótaknapi
- 15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 202
Fundarslit um 16:15
Bein útsending frá Hrossaræktarráðstefnunni
Minningarorð um Ragnar Tómasson
Drög að dagskrá LM 2026