Claus Becker látinn-
Þau tíðindi hafa borist Eiðfaxa, að hestamaðurinn þýski Claus Becker lést í dag á attræðisaldri…
Claus var einn af forkólfum í innflutningi íslenskra hesta til Þýskalands og var hann einn af fyrstu samstarfsmönnum Gunnars Bjarnasonar á þeim vettvangi. Hann rak hinn stóra hestabúgarð, „Grenzlandhof“ í Rínarhéraði og ræktaði þar íslensk hross.
Claus var stofnandi og hugmyndasmiðurinn á bak við „Saga reitschule“ sem er keðja íslandshesta reiðskóla um allt Þýskaland.
Claus var mikill Íslandsvinur og átti hann marga vini hér á landi. Hann kom hingað við hvert tækifæri og var búinn að skipuleggja eina slíka ferð í oktobermánuði en sjúkdómurinn sem hann var búinn að berjast við í nokkur ár lagði hann að velli í dag.
Eiðfaxi vottar fjölskyldu Claus Becker og vinum innilega samúð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH