Reiðtygjasmygl kært til lögreglustjóra

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Kærur teknar fyrir fljótlega

Matvælastofnun hefur sent kærur til lögreglustjórans í Reykjavík vegna smygls á notuðum reiðtygjum til landsins. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, staðfestir þetta. Um er að ræða tvö tilfelli sem uppgötvuðust nýlega við hefðbundið eftirlit hjá tollgæslunni. Í öðru tilfellinu fundust notuð reiðtygi í bíl í gámi sem var að koma frá Þýsalandi. Í hinu tilfellinu í póstsendingu, einnig frá meginlandinu. Gert er ráð fyrir að kærurnar verði teknar fyrir fljótlega, enda séu málsatvik skýr í báðum tilfellum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link