Ríðum á Landsmót

  • 21. júní 2012
  • Fréttir
Ríðum á Landsmót

Hestamannafélagið Sóti hvetur hestamenn að fjölmenna í hópreið nk. sunnudag í fréttatilkynningu:

„Hestamannafélagið Sóti hvetur félaga í Mána, Brimfaxa, Sörla, Andvara, Gusti, Fáki og Herði til að fjölmenna í reiðina ,,Ríðum á Landsmót“ á sunnudaginn og upplifa gömlu stemninguna sem fólst í því að fara ríðandi á Landsmót.  Klæðnaður við hæfi hestaferðalaga.  Sjáumst hress á sunnudaginn!“ segir í tilkynningunni.
 
Hópreiðin „Ríðum á Landsmót“ hefst sunnudag kl. 9 á Bessastöðum á Kjalarnesi og riðið í Víðidal á landsmót. Allar upplýsingar um hópreiðina má nálgast hér.
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link