Efri – Rauðalækur ræktunarbú ársins

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum

@font-face {font-display: swap;
font-family: „Times New Roman“;
}p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal { margin: 0cm 0cm 0.0001pt; font-size: 12pt; font-family: „Times New Roman“; }table.MsoNormalTable { font-size: 10pt; font-family: „Times New Roman“; }div.Section1 { page: Section1; }

Hrossaræktarbúið Efri – Rauðilækur í Eyjafirði hlaut útnefningu sem ræktunarbú ársins á haustfundi HEÞ sem haldin var í gær (fimmtudag). Þetta er í þriðja sinn sem búið hlýtur þessa viðurkenningu. Alls voru sýnd átta hross frá Efri – Rauðalæk á árinu og var meðaleinkunn þeirra 8,07 og meðalaldur 5,67 ár. Einnig voru veittar á fundinum viðurkenningar til ræktenda efstu kynbótahrossa í hverjum flokki fyrir á árinu.

Hryssur 4 vetra: Elding frá Barká 8,02

Hryssur 5 vetra: Rauðhetta frá Kommu 8,22

Hryssur 6 vetra: Krækja frá Efri – Rauðalæk 8,34

Hryssur 7 vetra og eldri: Týja frá Árgerði 8,37

Stóðhestar 4 vetra: Krókur frá Ytra – Dalsgerði 8,13 / Símon frá Efri – Rauðalæk 8,13

Stóðhestar 5 vetra: Hrímnir frá Ósi 8,32

Stóðhestar 6 vetra: Kappi frá Kommu 8,51

Stóðhestar 7 vetra og eldri: Hraunar frá Efri – Rauðalæk 8,72

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link