Hrímnir frá Ósi fékk 8,88
Guðmundur Björgvinsson sýndi stóðhestinn Hrímnir frá Ósi rétt í þessu og hlutu þeir einkunnina 8,88 og eru sem stendur í þriðja sæti.
Hrímnir var á toppi stöðulista í B-flokki gæðinga fyrir mótið og var beðið sýningar hans með eftirvæntingu.
Fjölmargir sitja hér í brekkunni við Hvammsvöll og fylgjast með forkeppninni. Veðrið er eins og best verður á kosið, heitt, skýjað og smá gola. Ekki er úr vegi að hvetja fólk að fjölmenna í Víðidal í dag en eftir hádegi fer fram forkeppni barnaflokki sem ávallt er skemmtilegt áhorfs.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH