Má klóna íslenska hesta ?
Verið er að smíða reglur innan FEIF hvað varðar fósturvísaflutninga og klónun, en fram að þessu hafa engar reglur verið til hvað þetta varðar.
Sífellt algengara er að hryssur fari í fósturvísaflutninga hér á landi en það var ekki fyrr en á seinni árum að meðferðin var í boði og á verði sem hægt er fyrir almenna hrossaræktendur að ráða við.
Reglur um fósturvísaflutninga. Drög eru komin fram um málefnið.
- Takmörkun á fjölda afkvæma hvert ár (2 úr fósturvísum + 1 hryssan sjálf).
- Nákvæm skráning í WF á fósturmæðrum.
- Algjört bann við klónun.
- Báðar mæður skráðar í WF.
- Báðar mæður séu DNA greindar og hreinar íslenskar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH