Tvær tillögur að lagabreytingum
Tvær tillögur að breytingum á lögum Gæðingadómarafélags LH verða teknar fyrir á aðalfundi félagsins sem haldinn verður föstudaginn 26. október næstkomandi:
Tillaga 1:
„Ég undirritaður vill koma með tillögu að breytingar að lögum Gæðingadómarafélag landssambands Hestamannafélaga. Greinin verði felld inní lög félagsins þar sem það þykir passa. Greinin er svo hljóðandi: Stjórnarmanni er óheimilt að sitja í fræðslunefnd eða öfugt. Fjölnir Þorgeirsson.“
Tillaga 2:
„Við kaflann um fræðslunefnd komi eftirfarandi viðbót; Fræðslunefnd hafi farið yfir og gert skil á niðurstöðum samhæfingarnamskeiða fyrir 1. april ár hvert. Lárus Ástmar Hannesson.“
Aðalfundur GDLH fer fram Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst hann kl. 17. Dagskrá fundarins má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH