Meistaradeild KS í hestaíþróttum „Stórt keppnisár framundan í Skagafirði“

  • 7. febrúar 2026
  • Fréttir

Ljósmynd: LinaImages/Carolin Giese

Allt klárt fyrir Meistaradeild KS

Nú styttist óðum í að keppnistímabilið bresti á af alvöru í Skagafirðinum, en Meistaradeild KS fer af stað með fyrsta móti vetrarins nú í febrúar í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Eiðfaxi heyrði í Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur, formanni deildarinnar, og tók púlsinn á stemningunni fyrir komandi átökum.

Það er ljóst að eftirvæntingin er mikil fyrir norðan. Aðspurð hvernig stemningin sé hjá stjórn deildarinnar segir Sigurlína hana vera mjög góða.

„Það er kominn hugur í fólk að byrja spennandi tímabil þar sem stórt keppnisár er framundan í Skagafirði,“ segir Sigurlína og vísar þar til þess að Landsmót hestamanna verður haldið á Hólum í Hjaltadal í sumar. „Allt er orðið klárt fyrir fyrsta mót sem fer fram miðvikudaginn 11. febrúar, en þá verður keppt í fjórgangi.“

Gæðin í Meistaradeild KS hafa sýnt sig og sannað undanfarin ár og virðist engin breyting verða þar á í vetur. Sigurlína nefnir að mikið sé um nýja knapa sem koma inn í deildina og verður gaman að fylgjast með þeim spreyta sig. Hvað varðar hrossakostinn segir Sigurlína að von sé á veislu. „Við munum eflaust sjá mörg góð hross í vetur sem við höfum bæði séð áður, en ég hef líka trú á því að margir mæti með ný hross sem eru að byrja sinn keppnisferil. Það er alltaf spennandi.“

Níu lið og hefðbundið snið

Mikil aðsókn er í deildina í ár og munu alls níu lið taka þátt í vetur. Sigurlína segir að fyrirkomulagið verði með hefðbundnu sniði; riðin verða A- og B-úrslit líkt og síðustu ár. Þrír knapar frá hverju liði keppa á hverju kvöldi, nema í Gæðingalist þar sem tveir keppendur mæta úr hverju liði.

„Við munum vonandi sjá mörg ný og efnileg hross í bland við reyndari hross sem starta Landsmótsárinu í Meistaradeild KS,“ segir Sigurlína.

Mikilvægur hlekkur í samfélaginu

Meistaradeild KS er ekki bara íþróttaviðburður heldur stór þáttur í mannlífinu fyrir norðan yfir vetrartímann. Sigurlína leggur áherslu á mikilvægi deildarinnar fyrir svæðið.

„Þessi deild skiptir ótrúlega miklu máli fyrir allan Skagafjörð og næsta nágrenni. Keppendur koma víðsvegar að af Norðurlandi og einnig taka nemendur Hólaskóla þátt. Þetta gerir mikið fyrir hestasamfélagið og gefur áhugafólki tækifæri til að koma og sjá sterk hross.“

Að lokum hvetur Sigurlína alla hestaáhugamenn til að fylgjast með. „Við hvetjum alla til að fylgjast með spennandi vetri, hvort sem fólk mætir í stúkuna í Svaðastaðahöllinni eða horfir í beinni útsendingu á Eiðfaxi TV.“

Dagskrá Meistaradeildar KS 2026

Hér fyrir neðan má sjá keppnisdaga vetrarins. Rétt er að taka dagana strax frá í dagatalinu:

11. febrúar,Fjórgangur V1
25. febrúar,Slaktaumatölt T2
13. mars,Fimmgangur F1
25. mars,Gæðingalist
12. apríl,Gæðinga- og 150 metra skeið
17. apríl,Tölt T1 & Skeið í gegnum höllina

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar