Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslistinn klár fyrir slaktaumatöltið

  • 3. febrúar 2026
  • Fréttir

Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði unnu slaktaumatöltið í Meistaradeildinni í fyrra. Mynd: Carolin Giese

Ráslistinn er klár fyrir slaktaumatöltið á fimmtudaginn í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Ásmundur Ernir Snorrason vann þessa grein í fyrra á Hlökk frá Strandarhöfði og mætir á henni aftur til leiks. Þeir sem þekkja Ása vita að hann ætlar alla leið. Þetta var hans fyrsti sigur í Meistaradeildinni í fyrra en þau Hlökk enduðu á að sigra þrjár greinar í deildinni og taldi drjúgt fyrir Ása í stigakeppninni þar sem hann endaði annar í einstaklingskeppninni.

Fjögur af sex pörum sem voru í úrslitum í fyrra mæta aftur

Það eru mörg önnur sterk pör á ráslistanum en fjögur af þeim sex pörum sem voru í úrslitum í fyrra mæta aftur. Þau Ásmundur og Hlökk og Arnhildur Helgadóttir á Frosta frá Hjarðartúni, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum og Eyrún Ýr Pálsdóttir á Drangi frá Steinnesi.

Lið Hjarðartúns leiðir liðakeppnina en þau unnu einmitt liðaplattann í þessari grein í fyrra. Þau tefla fram nánast sama liði, Arnhildi á Frosta og Jakobi Svavari Sigurðssyni á Hrefnu frá Fákshóli en Helga Una Björnsdóttir mætir á nýju hrossi í ár, henni Björt frá Kráku, sem við fengum að sjá í fjórgangnum og vöktu verðskuldaða athygli.

Sýnt í beinni á EiðfaxaTV

Eins og áður hefst keppni stundvíslega kl. 19:00 í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. HorseDay býður frítt í stúkuna, þannig að áhorfendur geta tryggt sér sæti og upplifað keppnina í einstakri stemningu á staðnum. Fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verða ÁB veitingar með glæsilegt hlaðborð á staðnum og gestir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantanir fara fram HÉR. Húsið opnar klukkan 17:00

Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is

Ráslisti

Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið
1 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku Kveikur frá Stangarlæk 1 Birta frá Lambanes-Reykjum Hjarðartún
2 Védís Huld Sigurðardóttir Ötull frá Narfastöðum Draumur frá Lönguhlíð Gná frá Hofsstaðaseli Ganghestar / Margrétarhof
3 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti Frami frá Ketilsstöðum Brynja frá Bakkakoti Ib bílar
4 Teitur Árnason Hrafnar frá Hvoli Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Stjarna frá Stóra-Hofi Top Reiter / Sumarliðabær
5 Hinrik Bragason Hugur frá Hólabaki Hrókur frá Hjarðartúni Heiðdís frá Hólabaki Hestvit / Árbakki
6 Viðar Ingólfsson Bylur frá Kvíarhóli Stormur frá Herríðarhóli Vornótt frá Hólabrekku Hrímnir / Hest.is
7 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi Auður frá Lundum II Sunna-Rós frá Úlfljótsvatni Hestvit / Árbakki
8 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Pan frá Breiðstöðum Dúkka frá Úlfsstöðum Ganghestar / Margrétarhof
9 Hanne Smidesang Tónn frá Hjarðartúni Dagur frá Hjarðartúni Harpa frá Hjarðartúni Uppboðssæti
10 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni Skýr frá Skálakoti Hrund frá Ragnheiðarstöðum Hjarðartún
11 Brynja Kristinsdóttir Snorri frá Litla-Dal Stekkur frá Skák Perla frá Litla-Dal Hrímnir / Hest.is
12 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum Hreyfill frá Vorsabæ II Flauta frá Hala Top Reiter / Sumarliðabær
13 Benjamín Sandur Ingólfsson Goði frá Oddgeirshólum 4 Hrannar frá Flugumýri II Assa frá Oddgeirshólum 4 Ib bílar
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk Hrannar frá Flugumýri II Gríma frá Efri-Fitjum Hestvit / Árbakki
15 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Loki frá Selfossi Sunna frá Sumarliðabæ 2 Hrímnir / Hest.is
16 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi Draupnir frá Stuðlum Ólga frá Steinnesi Top Reiter / Sumarliðabær
17 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hraunar frá Hrosshaga Gloría frá Skúfslæk Hjarðartún
18 Sigurður Vignir Matthíasson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 Hringur frá Gunnarsstöðum I Jasmín frá Hlemmiskeiði 2 Ganghestar / Margrétarhof
19 Þorgeir Ólafsson Gígjar frá Bakkakoti Brynjar frá Bakkakoti Spóla frá Hólmahjáleigu Ib bílar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar