Ný stjórn kjörin og þrír nýir heiðursfélagar útnefndir
F.v. Berglind Sveinsdóttir formaður Sleipnis og heiðursfélaggarnir Guðmundur Árnason, Ragnar Gunnarsdóttir og Þórdís Ólöf Viðarsdóttir
Aðalfundur Hestamannafélagsins Sleipnis og Sleipnishallarinnar ehf. var haldinn í Hliðskjálf þann 3. febrúar síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur og bar hæst tíðindi af stjórnarkjöri, undirritun nýs þjónustusamnings við Árborg og útnefningu þriggja nýrra heiðursfélaga.
Breytingar á stjórn
Nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins. Solveig Pálmadóttir gaf ekki kost á sér áfram og Elísabet Sveinsdóttir færði sig úr aðalstjórn yfir í varastjórn. Berglind Sveinsdóttir var endurkjörin formaður og með henni í aðalstjórn sitja Bryndís Guðmundsdóttir, Anna Björg Níelsdóttir og nýliðarnir Linda Björgvinsdóttir og Guðmundur Árnason.
Stjórn Sleipnis 2026:
Berglind Sveinsdóttir – formaður
Bryndís Guðmundsdóttir – meðstjórnandi
Anna Björg Níelsdóttir – meðstjórnandi
Linda Björgvinsdóttir – meðstjórnandi
Guðmundur Árnason – meðstjórnandi
Varastjórn: Elísabet Sveinsdóttir og Jón Valgeir Geirsson.
Mikilvægur samningur til fimm ára
Á fundinum undirrituðu Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og Berglind Sveinsdóttir nýjan fimm ára þjónustusamning milli sveitarfélagsins og félagsins. Samningurinn er talinn mikið heillaskref fyrir starfsemi Sleipnis og tryggir áframhaldandi öflugt samstarf.
Þrír nýir heiðursfélagar
Hápunktur fundarins var þegar þrír félagsmenn voru sæmdir heiðursfélaganafnbót fyrir ómetanlegt framlag til félagsins:
Þórdís Ólöf Viðarsdóttir – Þórdís hefur verið burðarás í starfi félagsins lengi. Hún var formaður Sleipnis á árunum 2010–2012 og leiddi félagið í gegnum stóra áfanga þegar bygging reiðhallarinnar hófst. Hún var gjaldkeri félagsins 2009–2010 og hefur frá árinu 2016 sinnt gjaldkerastörfum fyrir reiðhallarnefnd af mikilli nákvæmni.
Guðmundur Árnason – Guðmundur var heiðraður fyrir að vera fyrirmynd í sjálfboðaliðastarfi. Hann hefur ávallt verið tilbúinn að leggja til tæki, tól og vinnu þegar félagið hefur þurft á að halda.
Ragna Gunnarsdóttir – Ragna hefur verið afar virk í nefndarstörfum, m.a. í skemmtinefnd og kvennareiðsnefnd, auk þess að gegna formennsku í reiðhallarnefnd. Hún er þekkt fyrir að veigra sér aldrei við að leggja hönd á plóg.
Þau Guðmundur og Ragna hafa jafnframt stutt dyggilega við bakið á félaginu í gegnum fyrirtæki sitt, Baldvin & Þorvald, um árabil.
Ný stjórn kjörin og þrír nýir heiðursfélagar útnefndir
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Spennandi kvöld framundan í Meistaradeild KS
Fyrsta stórmótið í nýrri reiðhöll Sörla