Eiðfaxi TV Fjórði þáttur af „Dagur í hestamennsku“

  • 14. febrúar 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Næsti þáttur af „Degi í hestamennsku“ kemur út á sunnudaginn kl 20:00 og fjallar í þetta skiptið um járningar.

Fjórði þáttur af „Degi í hestamennsku“ þar sem Ásta Björk Friðjónsdóttir skyggnist inn í mismunandi hliðar hestamennskunnar hér á Íslandi. Í þetta sinn fylgdi hún Ásta Björk Erlendi Árnasyni eftir en hann er einn af reyndustu járningarmönnum landsins.

„Ég eyddi heilum vinnudegi með Ella sem er einn af bestu og reyndustu járningamönnum hér á landi. Elli er með um 50.000 járningar á ferilskránni og járnar í dag bróðurpart af bestu keppnis- og sýningarhrossunum á Íslandi,“ segir Ásta sem þótti mjög skemmtilegt og fróðlegt að eyða með honum deginum.

„Það var mikið grínast og strítt en aðallega hver gæðingurinn járnaður á fætur öðrum. Elli er mikill pælari og mér fannst mjög skemmtilegt að sjá aðeins á bakvið tjöldin hve mikil hugsun fer í hverja og eina járningu. Elli segir líka svo vel frá og er svo skemmtilegur að þetta var bara frábær dagur!“

Þátturinn kemur út á Eiðfaxa TV kl. 20:00 á sunnudaginn en íslenskur, enskur og þýskur texti er í boði.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar