Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Fyrsta mót Samskipadeildarinnar á miðvikudag

  • 16. febrúar 2026
  • Fréttir
Frítt inn og bein útsending

Nú í vikunni fer fyrsta mót Samskipadeildarinnar – Áhugamannadeildar Spretts 2026 fram. Keppnin hefst fimmtudaginn 19. febrúar og verður keppt í fjórgangi (V2).

Mótið fer fram í Samskipahöllinni í Spretti og hefst veislan stundvíslega klukkan 18:30. Búist er við mikilli spennu enda hefur myndast gríðarlega skemmtileg stemning á keppniskvöldum deildarinnar undanfarin ár.

Í fyrra voru það þau Kristín Ingólfsdóttir og Ásvar frá Hamrahóli sem stóðu uppi sem sigurvegarar í fjórganginum. Spennandi verður að sjá hvaða hross og knapar mæta til leiks í ár og hvort nýir sigurvegarar verði krýndir.

Frítt inn og veitingar á staðnum

Aðgangur að öllum kvöldum Samskipadeildarinnar er ókeypis og eru hestamenn hvattir til að fjölmenna, styðja við bakið á keppendum og njóta kvöldsins. Veitingasala verður á staðnum fyrir svanga gesti, en nánari upplýsingar og matseðill verða kynnt síðar.

Fyrir þau sem ekki eiga heimangengt í Kópavoginn er vert að benda á að mótið verður í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is, en Eiðfaxi TV er einmitt styrktaraðili fjórgangsins.

Áhugasömum er bent á að fylgjast með Samskipadeildinni á Instagram undir nafninu @ahugamannadeildspretts. Þar munu birtast gagnlegar upplýsingar varðandi keppnina, liðin, matseðla og fleira þegar nær dregur.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar