Opið Ísmót á Rauðavatni
Opið Ísmót á Rauðavatni laugardaginn 27. febrúar (vegleg peningaverðlaun). Mótið hefst klukkan 13:00.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum
- Tölt (áhugamenn)
- Tölt (opinn flokkur)
- A flokkur (opinn)
- B flokkur (opinn)
Vegleg verðlaun eru í boði!!
- Reiðskóli Reykjavíkur gefur 25 þúsund krónur fyrir 1. sæti í A – og B – flokki.
- Kranaþjónusta Rúnars gefur 25 þúsund fyrir 1. sæti í Tölti Áhugamanna.
- SS hellulagnir gefur 25 þúsund fyrir 1. sæti í Tölti Opnum flokk.
- Top Reiter gefur glæsilegar ábreiður fyrir 2. sæti í öllum flokkum.
- Barki gefur marstall fóðurpoka fyrir 3. sæti í öllum flokkum.
8 ríða til úrslita í öllum flokkum.
Dagskráin er svohljóðandi:
Tölt áhugamenn ( hægt tölt, hraðabreytingar, fegurðartölt)
Tölt opinn flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar, yfirferðartölt)
A flokkur (Tölt, brokk, frjáls ferð, skeið)
B flokkur (hægt tölt, brokk, yfirferðar tölt, frjáls ferð)
Riðið er á beinni braut og eru 3 knapar inná í einu.
Meðal knapa sem mæta eru stórknaparnir Logi Laxdal, Sigurður V Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir.
Opið verður fyrir skráningu á mailinu [email protected] frá og með deginum í dag til klukkan 11 á laugardagsmorgun. Einnig verður opið fyrir skráningu í síma 696 2904 frá klukkan 9-11 á laugardagsmorgun. Skráningargjaldið er 1500 kr.
Fjölmennum nú á mótið og gerum okkur glaðan dag á Rauðavatni.
Góð veðurspá er fyrir laugardaginn og búið er að þykktarmæla ísinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH