Folaldasýning Sörla
Það er komið að því – hin stórskemmtilega folaldasýning Sörla verður haldin á Sörlastöðum laugardaginn 28. febrúar kl. 13:00. Folaldasýningin er opin öllum og eru hestamenn hvattir til að fjölmenna og njóta dagsins.
Þorvaldur Kristjánsson dæmir folöldin. Verðlaun verða veitt fyrir efstu fimm folöldin í hvorum flokki fyrir sig, þ.e. flokki hestfolalda og flokki merfolalda. Einnig verða veitt verðlaun fyrir glæsilegasta folald sýningarinnar og fær eigandi þess folalds hinn stórglæsilega farandbikar, Þjórsárbakkabikarinn.
Folatollauppboð
Folatollauppboð verður á sínum stað yfir daginn, með spennandi tollum sem kynntir verða nánar síðar.
Skráning og greiðsla
Skráningargjald er 5.000 kr. á hvert folald. Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið kynbotanefnd@sorli.is með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn folalds
Litur
Móðir
Faðir
Ræktandi
Eigandi
Greiða skal skráningargjaldið inn á reikning 0545-26-3615, kt. 640269-6509. Mikilvægt er að senda kvittun fyrir greiðslunni á kynbotanefnd@sorli.is og hafa nafn folalds sem skýringu við millifærsluna.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kynbótanefnd Sörla
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Guðlaug og Kolbrún Stella sigurvegarar dagsins