Yfirburðir Hjarðartúns í fyrstu mótum Meistaradeildar Líflands
Meistaradeild Líflands hefur allt til brunns að bera sem prýðir öfluga og spennandi keppnisdeild. Knapar tefla fram sínum bestu hestum og markmiðið er skýrt: Að skila góðum árangri, sækja sigurinn og sanka að sér dýrmætum stigum í bæði einstaklings- og liðakeppni. Sagan hefur enda kennt okkur að hvert einasta stig skiptir sköpum í jafnri keppni og oft ráðast úrslitin ekki fyrr en á allra síðasta mótinu.
Að því sögðu verður árangur liðs Hjarðartúns í fyrstu þremur keppnisgreinunum að teljast algjörlega magnaður. Það er ljóst að þau hafa komið sér þægilega fyrir á toppnum eftir að hafa landað sigri í liðakeppni í öllum þremur greinum. Rúmlega 40 stig skilja nú að Hjarðartún og næsta lið, en það þýðir þó ekki að Hjarðartún megi við kæruleysi í næstu greinum. Næst á eftir þeim situr nefnilega sameinað lið Top Reiter / Sumarliðabæjar, en lið Sumarliðabæjar stóð einmitt uppi sem sigurvegari í liðakeppninni í fyrra á meðan Top Reiter er sigursælasta lið deildarinnar frá upphafi. Aðeins tveimur stigum á eftir þeim er svo lið Hrímnis / Hest.is í þriðja sæti.
Staðan í liðakeppni eftir þrjár greinar
- Hjarðatún – 126,5 stig
- Top Reiter/Sumarliðabær – 86 stig
- Hrímnir/Hest.is – 84 stig
- IB bílar – 75,5 stig
- Ganghestar/Margrétarhof – 71 stig
- Hestvit/Árbakki – 69 stig
Eins og kom fram hér í upphafi hefur lið Hjarðartúns unnið allar fyrstu þrjár greinarnar. Í fimmgangskeppninni, sem fram fór síðastliðinn föstudag, náðu liðsmenn þess frábærum árangri. Hans Þór Hilmarsson og Ölur frá Reykjavöllum höfnuðu í 2. sæti með einkunnina 7,43. Þá sýndu þau Helga Una Björnsdóttir og Jakob Svavar Sigurðsson mikið hugrekki þegar þau mættu til leiks með tvo unga og hátt metna stóðhesta, sem ekki höfðu keppt áður; þá Karl frá Kráku og Safír frá Laugardælum. Það skilaði sér í B-úrslitum þar sem þrjú urðu jöfn í efsta sæti – þau Helga, Jakob og Gústaf Ásgeir á Gými frá Skúfslæk – öll með einkunnina 7,36. Eftir sætaröðun dómara stóð Jakob Svavar uppi sem sigurvegari í B-úrslitum og Helga Una varð önnur á Karli. Það er ekki pressulaust fyrir knapa að mæta með svo unga hesta í erfiða keppni en það borgaði sig hjá þeim og skilaði mikilvægum stigum fyrir liðið.
Farið var yfir stöðuna og keppni í fimmgangi þegar fulltrúar Hjarðartúns, þau Hans Þór, Arnhildur og Helga Una, mættu í skemmtilegt viðtal til Huldu Geirsdóttur á EiðfaxaTV.
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum